Leikur: Ásadans

ásar

Fyrir þennan leik þurfum við herbergi með 4 hornum, tónlist og spilastokk. Hvert horn á sér sína spila tegund (gott er að hengja eitt spil af sortinni í hornið). Hornin eru hjarta, spaði, tígull eða lauf. Allir eru úti á gólfi og dansa á meðan tónlist er spiluð. Þegar tónlistin stoppar velja allir sér horn til þess að standa í. Þegar allir hafa valið sér horn er dregið spil. Ef spilið er spaði eru allir sem eru í spaða horninu úr leik. Svona gengur þetta þangað til einungis einn er eftir sem er þá ásakóngur/drottning.

Færðu inn athugasemd